GrasekkjaKaren Jóhannsdóttir
Finnst þetta alls ekki fallegt orð og neita að láta fólk kalla mig þessu þessa vikuna! Nei takk..Ss. Marc er í Berlín á ávaxtaráðstefnu og verður alla vikuna og ég því ein heima og að hafa það gott! Prófin búin og skólinn ekki kominn almennilega í gang svo það er bara rólegt eins og er. Fínt því ég hef þá hellings tíma til að taka mig á í ræktinni og fara út að labba og svona.
Annars er ég líklega komin með nýja vinnu sem mér finnst bara nokkuð spennandi og með marga möguleika en segi betur frá því seinna.. ekkert ákveðið ennþá! Svo verð ég bara að læra neglurnar betur en ég er líklega komin með vinnuaðstöðu á snyrtistofu hér í Barcelona.. ss snyrtistofan mín sem ég fer alltaf á eru ekki með neglur og þær urðu voða spennar þegar að ég var að segja þeim frá þessu og þær bara buðu mér aðstöðu hjá þeim þegar að ég væri búin að æfa mig betur!
jæja best að fara út að labba.. þarf að rölta niður í "miðbæ" hverfisins og kaupa afmælisgjafir en litlu börnin í fjölskyldunni hans Marcs áttu bæði afmaeli í síðustu viku og verður haldið upp á það næsta sunnudag.. engir grænir frostpinnar eða súkkulaðikaka í þessu afmæli þó.. bara venjulegt matarboð þar sem að haldið var upp á bæði afmælin á McDonalds í gær þar sem bara börnum var boðið og því matarboð fyrir okkur fullorðna fólkið næstu helgi.. ég hefði sko alveg verið til í boltalandið á McDonalds :)
þangað til næst
Karen
Rokrassgat!Karen Jóhannsdóttir
Hahahaha thad er allt vitlaust hér í Barcelona.. thetta er eins og í bíómynd!Marc var ad keyra mig í skólann og vid thurftum ad sikksakka á veginum til ad fordast fljúgandi tré og ruslagáma (ath. ruslagáma ekki ruslatunnur). Thad eru tré úti um alla borg sem liggja út á gotuna eda yfir bíla og thau hafa flest rifnad upp med rótum.. Ein kona lést í gaer thar sem veggur hrundi vegna vindhvidu!! Marc sem er hédan hefur ALDREI séd annad eins hehe..
Og thad fyndna vid thetta allt er ad thad er ekkert svo mikid rok.. ekkert eins og getur ordid á Íslandi! Merkilegt!
PrófatíđKaren Jóhannsdóttir
Er hálfnuð í þessum prófum.. klára næsta fimmtudag júhúú!! :)
Vegna þessa hef ég ekki verið neitt voða aktíf hér.. hef reyndar ekki verið neitt voða aktíf hér í heildina en what the...
Annars er ég á fullu að fylgjast með mótmælunum og stend 100% með mótmælendunum, nema þessum nokkrum einstaklingum sem haga sér eins og fífl! Vona bara að þessi ríkistjórn fari að sjá að sér fljótlega!
Ég hef núna hafið nýtt átak eins og allir gera í ársbyrjun hehe.. Ætla að vera flott í bikiníinu í sumar ;) En er búin að gera veðmál við ræktina mína, þarf að mæta reglulega í ræktina eða 3 sinnum í viku í 6 mánuði og þá fæ ég 30 evrur frá þeim :) Nú er bara um að gera og vera dugleg og fá pening frá þeim svona til tilbreytingar!!
Jæja.. þar til næst (vonandi að lífið verði viðburðaríkara svo ég geti sagt ykkur frá einhverju skemmtilegu! :))
Karen
2009Karen Jóhannsdóttir
jaeja.. jolin buin og alvara lifsins tekin vid!Sit her a heathrow flugvelli og bid eftir ad komast heim til Barcelona..
Prof a morgun :( ekki gaman en thetta klarast vist eins og annad!
Langadi bara ad segja vid alla sem hittu mig ad thad var rosa gaman ad sja ykkur oll! :)
vonandi verdur ekki langt i naestu heimferd til islands
Kv
Karen
JólinKaren Jóhannsdóttir
Jæja.. jólin loksins að koma! :)Það er kominn desember sem þýðir að það má byrja að skreyta og baka og hlusta á jólatónlist og fleira! Ég er alveg rosalega mikið jólabarn í mér.. finnst þetta yndislegur tími. Marc var ekki alinn upp við jól sem mér finnst rosalega sorglegt þar sem þetta er svo yndislegur tími fyrir mig. Foreldrar hans hættu að halda upp á jólin þegar að amma hans og afi dóu og því þekkir hann ekki þessar hefðir sem ég þekki og elska. Hann hefur sagt oft hvað hann öfundi mig af því að verða svona spennt fyrir jólin.. hann hafi bara aldrei lært að meta þessa hátíð. En hann er í jólakennslu núna eins og í fyrra :) Jólalög, jólaskraut, jólabakstur og auðvitað jólatréð sem við keyptum okkur í fyrra.. gervitré með ljósum sem eru svo falleg :)
En það að jólin séu að koma þýðir líka að kuldinn sé mættur til Barcelona... shitt hvað getur orðið kalt hér! Og þessi kuldi er nístandi! Allt öðruvísi kuldi en á Íslandi og líka af því að húsin eru ekki undirbúin undir kuldann og því kalt inni í húsunum. En sem betur fer fjárfestum við í svona flottum hitablásara sem blæs heitu og köldu lofti eftir árstíðum :) Nauðsynlegt nefnilega líka á sumrin að hafa loftkælingu!
Jæja.. best að halda áfram að skreyta og fara svo að læra :)
Hasta pronto!
Karen
Drama drama drama!Karen Jóhannsdóttir
Á midvikudaginn fór ég med hundinn í fjallgongu!! thad er fjall á bak vid húsid mitt (eda ég ss bý í hlídum fjallsins thó ég búi í barcelonaborg!) en thar er vegur sem er upplýstur og mikid notadur af útilífsfólki. Ég med ipodinn í eyrunum ad syngja med thví hey!! ég er uppi á fjalli og enginn nálaegt!Allt í einu sperrist hundurinn minn alveg upp! ég tek headphonanna úr eyrunum og hvad haldidi!!!
THAD VAR FRÍKING VILLISVÍN VID HLIDINA Á OKKUR!!!
Villisvín hér eru mjog stór og ef thau rádast á thig thá er alls ekkert víst ad thú komist úr thví lifandi og frekar ólíklegt bara!! Ef thid sjáid fyrir ykkur Púmba thegar ad ég tala um villisvín.. ímyndid ykkur Púmba svona 5 sinnum staerri!!
Ég ss fór ad ganga haegt og rólega aftur á bak, thví ekki vill madur styggja dýrid, haldandi utan um munninn á hundinum svo hann faeri orugglega ekki ad gelta og snéri mér svo vid 10 metrum nedar og fór hlaupandi nidur fjallid!! hahahahaa.. thvílikt drama!
Er núna pínu hraedd vid fjallid sem er synd thví thetta er svo gód gonguleid!
En jaeja.. ég er komin í helgarfrí! ljúft... thó svo ad ég muni eyda deginum í lestur. Próf á mánudaginn!
Thangad til naest!
Passid ykkur á villisvínum, thau eru haettuleg! :D
Karen
Súkkuladi! :)Karen Jóhannsdóttir
Thad var súkkuladihátíd í gangi hér í Barcelona um helgina! Og ég súkkuladiunnandinn gat ekki látid mig vanta! Vid kaerustuparid fórum thví í gaer og roltum um sýningarsvaedid en á hverjum einasta bás var verid ad gefa ad smakka og svo voru their svo snidugir ad thú borgar 8 evrur inn en thessar 8 evrur faerdu til baka í sýningarpeningum sem thú mátt eyda eins og um venjulegar evrur vaeri ad raeda. ss átta evrur sem thú eydir ef thú vilt og í hvad sem thú vilt! mmmmm.. Thad voru ótrúlegustu hlutir tharna.. fólk ad mála málverk med súkkuladi, andlitsbod og handsnyrting med súkkuladi, súkkuladihús, súkkuladi listaverk og endalaust af súkkuladimolum til ad prófa!
Fór út med poka af súkkuladi sem ég keypti mér fyrir sýningarpeningana mína en thad súkkuladi var sykurlaust en rooooosalega gott! svo keypti ég mér líka ananas á priki til ad pota med í súkkuladigosbrunninn..
ss ekki mikil hollusta thennan sunnudaginn ;)
Annars er lífid bara vid thad sama nokkurn veginn.. próf framundan reyndar en bara 2! svo ekkert fyrr en í janúar thegar ad annarprófin byrja! Baedi prófin eru logfraedipróf svo ég sit sveitt hér med logfraedibaekurnar mínar og thykist vera eitthvad logfraedinord hahaha..
En ég skal segja ykkur sogu af hundinum mínum.. hann er svo elskulegur greyid!
Hann er farinn ad taka upp á thví ad loka hurdum en thad endar alltaf med thví ad hann lokar sig thá audvitad inni... svo heyrir madur bara vael og thá er greyid lokad inni í einhverju herberginu! hahaha hann er svo mikill kjáni!
jaeja.. best ad halda áfram logfraedilestri!
hasta luego!
Karen
LífidKaren Jóhannsdóttir
Jahháá.. í gaer lést ungur strákur í blokkinni minni! Thad eru núna 4 látnir á innan vid mánudi í blokkinni minni. 2 ungir strákar (bádir sjálfsmord heyrir madur af kjaftakellingunum) og 2 eldri menn sem voru búnir ad vera veikir. En thetta er alveg ótrúlega mikid mannfall á ekki lengri tíma í venjulegri blokk. Aetla ad kaupa blóm í dag og faera fjolskyldu thessa stráks thví hann var sá eini sem ég vissi hver var af thessum 4. Hann gaf Úlfi 2 bolta td til ad leika sér med og stoppadi yfirleitt til ad spjalla smá thegar ad vid maettumst á ganginum.sorglegt!
En svona er víst lífid og madur verdur ad horfa fram á veginn med jákvaedni í nestisboxinu! :)
Thad er farid ad votta fyrir smá heimthrá hjá mér! :) hlakka til ad koma heim um jólin. Thad er ekki gott ad vera med heimthrá en thad kemur og fer med reglulegu millibili!
Madur hugsar oft hvort ad madur sé ad missa af miklu.. t.d. 17.júní, menningarnótt, sumardaginn fyrsti, útilegur, grill, heitir pottar, sumarbústadir, ísbíltúrar, sundferdir.. o.s.frv.
En svo dett ég úr heimthránni og sé hvad ég hef thó ég hafi ekki akkúrat thessa hluti en ég hef sól, hita (á sumrin allavega :)), strondina, fallega borg, skemmtilegt mannlíf og morg taekifaeri!
Verd ad thrauka lífid hér í allavega 2 ár í vidbót og svo sér madur til hvort ég nái ekki ad draga Marc til Íslands í nokkur ár allavega! ;)
En svo er parturinn sem er sárastur held ég.. thad er fólkid! Og thau sem ég hef mest samviskubit yfir eru amma mín og afi!
Jaeja.. best ad fara ad gera eitthvad af viti!
Bara svona til ad thid vitid thad thá hugsa ég til ykkar allra oft og morgum sinnum!
knús
Karen
KreppaKaren Jóhannsdóttir
Já ekki mikid annad raett thessa sídustu og verstu!En vegna thessa thá hef ég ákvedid ad vinna med skólanum thví ad ég tapa bara á thví ad fá fyrirfram greitt úr bankanum mínum :( aetla samt ad fá námslánin um jólin beint frá lín svona til ad hafa á bakvid mig thó svo ad ég thurfi thá ad borga skrilljónir til baka eftir nám! Gaman ad vera námsmadur erlendis í dag!
Skólinn er skridinn í gang.. fullt af logfraedi.. adeins af sálfraedi og pínu starfssvidsfraedi (veit ekki hvad thetta heitir á íslensku). En thad er gott ad komast aftur í rútínu og hafa nóg fyrir stafni.. ég virka best thannig!
Er farin ad telja nidur í jólin! hlakka til ad komast heim til Íslands.. hlakka til ad hitta vini mína! Hlakka til ad hitta hana Gydu mína sem ég hitti bara einu sinni á ári!! Langar gera svo margt heima.. er farin ad sakna svo margra hluta! Er farin ad dreyma Vatnaskóg á naeturnar til daemis!
Listi sem ég tharf ad gera í jólafríi:
-Fara upp í sumarbústad
-Fara á hestbak
-Koma vid í Vatnaskógi
-Kaffihús med Gydu
-Kaffihús med Kotlu
-Ísbíltúr med Palla
-Spjallferd med Tinnu Rós (búid ad bóka thetta! :) )
-Djamm med fimleikastelpum
-Kíkja á fimleikaaefingu og fá ad hoppa á trampólíninu
-Sund
-Hitta eins marga og ég get sem vilja hitta mig!
ss langur listi og margt fleira sem ég vil gera!
Ef thid vitid um fleiri hugmyndir thá endilega komid med thaer!! :)
kv
Karen
allt vid thad samaKaren Jóhannsdóttir
Jaeja skólinn ad komast á skrid.. Mánudagar eru alveg killer dagar thví thá er ég í tímum frá 16-22 og er thví ad skrída inn um hurdina heima upp úr 23 og thá á eftir ad borda kvoldmat thví thad eru engar frímínútur á milli tíma sem haegt er ad nýta til thess :( Ss ótrúlega langir og leidinlegir dagar..
Annars er sólin loksins komin aftur! búid ad vera hraedilega leidinlegt vedur. Rigning og rok og meiri rigning. Samt ekki skemmtileg spánarrigning heldur leidinleg íslensk rigning ef thid skiljid hvad ég er ad meina!
Sídasti hamsturinn okkar dó fyrir um 2 vikum.. ss thá erum vid búin ad grafa 4 hamstra í gardinum hér fyrir utan húsid. Marc var svo ad labba heim um daginn frá bílageymslunni og rekst á HAMSTUR á gotunni. Hann hefur greinilega dottid af svolum sem voru thar fyrir ofan. Honum blaeddi litla greyinu svo Marc ákvad ad vera gódur og tók hann med heim. Thetta grey dó samt 3 dogum seinna. Thannig ad í alvoru erum vid búin ad grafa 5 hamstra en ekki 4!
Annars er ég farin ad hlakka til jólanna.. thad er einhvernveginn thad sem tekur vid eftir sumarid... ekkert thar á milli! Jól- sumar- jól- sumar! :)
Jaeja, aetla ad halda áfram ad laera! :)
hasta pronto!
Karen
